Ásdís og Ída í æfingahóp U-15 í handbolta

Rakel Dögg Bragadóttir og Ólafur Víðir Ólafsson völdu á dögunum 18 stúlkur til þátttöku á æfingum sem fara fram 2.-5. júní næstkomandi á Akureyri. 

Í hópnum eru tvær Valsstúlkur, þær Ásdís Þóra Ágústsdóttir og Ída Margrét Stefánsdóttir. 

Foreldrafundur vegna ferðarinnar verður haldinn þriðjudaginn 9. maí kl. 20.30 í fundarsölum ÍSÍ, Engjavegi 6.

Valur.is óskar stelpunum til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.