Auður Ester og Ísabella í æfingahóp U17
Haraldur Þorvarðarson og Sigurgeir Jónsson landsliðsþjálfarar U-17 í handbolta völdu á dögunum 16 stúlkur sem fara í æfinga og keppnisferð til Póllands 25. - 29. maí.
Í leikmannahópnum eru Valsstúlkurnar Auður Ester Gestsdóttir og Ísabella Maria Eiríksdóttir. Foreldrafundur vegna ferðarinnar verður haldinn fimmtudaginn 4. maí kl. 20.30 í fundarsölum ÍSÍ, Engjavegi 6.
Valur.is óskar stelpunum til hamingju með valið og góðs gengis í Póllandi.