Valur + Samba + Sól = Stuð

Stemmingin verður í hámarki á sunnudaginn þegar að Valur og KR mætast í meistaraflokki karla.

Baldur bongo mætir við annan mann og heldur uppi samba stemmingu sem er engu lík eins og að allir Valsarar þekkja.

Veðurspáin er frábær http://www.vedur.is/vedur/spar/stadaspar Samba + Sól + klassa fótbolti = svakalegt fjör.

það verður enginn svikin af því að mæta á Vodafonvöllinn á sunnudaginn.

Það mæta allir og taka með sér stórfjölskylduna + vini og vandamenn sem vilja upplifa alvöru stemmingu á alvöru velli.