Nýtt vallarmet

Í gær áttust við Valur og KR í 3.umferð Pepsídeildar karla. Leikurinn var hin mesta skemmtun þó að ekki hafi stigin skilað sér í hús. Það er skemmst fá því að segja að vallarmet var sett en 2.628 sáu leikinn í blíðskaparveðri.

Fyrir leik voru grillaðir hamborgarar frá Hamborgarafabrikkunni og Pepsi var með bolta-og þrautakeppni. Fyrir leik voruð síðan fimmfaldir meistarar meistaraflokks kvenna í handbolta heiðraðar og Hrafnhildur Skúladóttir heilsaði upp á leikmenn beggja liða. Eva Björk ljósmyndari var á vellinum og meðfylgjandi myndir tala sínu máli.