4. fl. kvenna Reykjavíkurmeistari
4. flokkur kvenna Vals í knattspyrnu varð á dögunum Reykjavíkurmeistari A-liða eftir glæsilegan 14-0 sigur á sameiginlegu liði Fram og Aftureldingar.
Mörkin 14 tryggðu Valsstelpum sigur í mótinu þar sem liðið endaði með jafn mörg stig og Víkingur en var með tveimur mörkum betra markahlutfall.
Valur.is óskar stelpunum og þeim sem að liðinu standa hjartanlega til hamingju með titilinn.