Úrslitaeinvígi Vals og FH hefst á miðvikudaginn

Úrslitaeinvígi Vals og FH í Olís-deild karla hefst miðvikudaginn 10. maí þegar liðin mætast í Kaplakrika. Um er að ræða einvígi milli deildar- og bikarmeistara og því ljóst að hart verður barist. 

Leikurinn hefst klukkan 20:15 og hvetur valur.is stuðningsmenn til að fjölmenna. Leikur númer tvö verður svo háður laugardaginn 13. maí í Valsheimilinu klukkan 14:00.