Knattspyrnufélagið Valur 106 ára 11. maí

Kæru Valsarar, fimmtudaginn 11.maí fögnum við 106 ára afmæli Vals.

Dagskráin er með hefðbundnum hætti. Klukkan 16:00 verður lagður blómsveigur við styttu séra Friðriks Friðrikssonar og eftir það verður boðið upp á kaffi og köku í veislusal félagsins.

Verið hjartanlega velkomin - Áfram Valur.