Uppskeruhátíð í handbolta og körfubolta

Uppskeruhátíðirnar munu fara fram í hátíðarsal Vodafone hallarinnar þriðjudaginn 22. maí og mun körfuboltahátíðin hefjast kl. 16:30 en handboltinn kl.18:30. Þar verður uppskera vetrarins tíunduð og viðurkenningar veittar fyrir tímabilið 2011-2012. Svo óheppilega vill til að á sama tíma og handboltahátíðin fer fram mun Ísland stíga á stokk í Eurovision og munum við gera smá hlé á hátíðinni til að sýna íslenska lagið á stóra tjaldinu.
Að lokinni afhendingu viðurkenninga býður Valur upp á safa og kaffi fyrir alla gesti. Iðkendur eru beðnir um að koma með köku/brauðmeti á hlaðborð.
Við hvetjum alla iðkendur til að mæta í æfingagalla Vals eða öðrum rauðum fatnaði. Við hvetjum einnig foreldra til að mæta og fagna uppskerunni með börnum sínum.
Með Valskveðj Uppskeruhátíðarnefnd













