Uppskeruhátíðir - Handbolti og Körfubolti fimmtudaginn 1. júní
Fimmtudaginn 1. júní verður uppskeruhátíð hjá yngriflokkum í bæði handbolta og körfubolta. Frá klukkan 16:30-18:00 verður veturinn gerður upp hjá 5. - 8. flokk í handboltanum og körfuboltinn fylgir strax í kjölfarið klukkan 18:00.
Veittar verða viðurkenningar fyrir keppnistímabilið, þjálfarar gera grein fyrir starfi vetrarins foreldrafélög flokkanna sjá um léttar veitingar.
Foreldrar hvattir til að fjölmenna.
Uppskeruhátíðin fer fram í hátíðarsal Valsheimilisins.