Sjö Valsarar í æfingahóp U17 í handbolta

Heimir Ríkarðsson þjálfari U17 ára landsliðs karla valdi á dögunum æfingahóp sem æfir 24. - 26. maí.

Liðið tekur þátt í tveimur mótum í sumar, European Open í Svíþjóð í byrjun júlí og Ólympíuhátið Evrópuæskunnar í lok júlí. Sitthvor hópurinn verður sendur á mótin með von um að skapa sem mesta breidd í aldurshópnum.

Í hópnum eru sjö Valsarar, þeir Arnór Snær Óskarsson, Eiríkur Þórarinsson, Stiven Tobar Valencia, Tjörvi Týr Gíslason, Tumi Steinn Rúnarsson, Úlfar Páll Monsi Þórðarson og Viktor Andri Jónsson. 

Valur.is óskar strákunum til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.