Valur á Akureyri

Miðvikudaginn 23 Maí kl 18.30 verður stórleikur á Akureyri þá etja kappi Þór/KA annarsvegar og knattspyrnufélagið Valur hinnsvegar. Er þar um að ræða kvennalið félagana og er óhætt að spá spennandi leik. Þór/KA hefur verið á mikilli siglingu og unnið báða sína leiki hingað til en Valsstúlkur unnu góðan sigur í síðasta leik og má því með sanni segja að þarna mætast stálin stinn. Veðurspáin er frábær og því alveg kjörið að renna norður og hvetja okkur stelpur til sigurs.