BAUHAUS skrifar undir samstarfsamning við knattspyrnudeild Vals

Knattspyrnufélagið Valur og BAUHAUS skrifuðu undir nýjan samstarfssamning sem gildir út keppnistímabilið 2017. BAUHAUS er þekkt fyrir myndarlegan stuðning við íþróttir í þeim löndum sem þeir starfa og sjá þeir hag sínum vel borgið með samstarfsamning við Val. Það er afar mikilvægur þáttur í starfsemi félagsins að hafa öfluga samstarfsaðila og erum við Valsmenn afar stoltir af samstarfi okkar við BAUHAUS.