Valshlaupið - 3. júní

Laugardaginn 3. júní verður Valshlaupið haldið í sjöunda sinn og hefst kl 11:00 við Valsheimilið að Hlíðarenda.

Vegalengdir
3 km og 10 km.

Þátttökugjald

  • Fæddir 1999 og síðar 1.000 kr í forskráningu en 1.500 kr á keppnisdegi.
  • Fæddir 1998 og fyrr 1.500 kr í forskráningu en 2.000 kr á keppnisdegi.
  • Fjölskyldugjald 3.500kr. ATH aðeins í forskráningu á Hlíðarenda á föstudeginum fyrir hlaupið frá kl 17:00-19:00.

Skráning
Forskráningin verður með tvennum hætti.

  • 1) Á hlaup.is þar sem skráð er og greitt á netinu með greiðslukorti. Verður opið fyrir þessa skráningu fram til föstudagsins 2. júní kl 21:00. Þeir sem greiða á hlaup.is sækja númer og flögur á keppnisdegi í Valsheimilið kl 9:30-10:45.
  • 2) Í Valsheimilinu föstudaginn 2. júní frá kl 17:00-19:00. Þeir sem forskrá sig á Hlíðarenda fá númer og flögu afhent þar.

Skráning á keppnisdegi er frá kl 9:30 til 10:45 í Valsheimilinu.

Tímataka
Flögutímataka og markklukka.

Hlaupaleiðir
10km: Lagt af stað frá bílastæðum við Valsheimilið og hlaupið niður Hlíðarfótinn (vegurinn) að göngustígnum við ylströndina og beygt þar til hægri og hlaupið meðfram ströndinni alveg út að Suðurgötu þar sem farið er meðfram henni stuttan spotta að hjólastígnum sem er til vinstri. Hlaupið beina leið að snúningspunkti. ATH. að farið er af hjólastígnum yfir á göngustíginn á snúningspunktinum. Hlaupið til baka meðfram ströndinni alla leið að Öskjuhlíð. Beygt er til vinstri við veitingahúsið Nauthól og hlaupið á stígum meðfram Öskjuhlíðinni og síðan gegnum undirgöngin þaðan sem stutt er í markið.

3km: Lagt af stað frá bílastæðum við Valsheimilið og hlaupið niður Hlíðarfótinn (vegurinn) að göngustígnum við ylströndina og beygt þar til vinstri of farið að grunni Ásatrúarfélagsins og tekinn 180° snúningur og hlaupið á stígum meðfram Öskjuhlíðinni framhjá HR og gegnum undirgöngin þaðan sem stutt er í markið

Valshlaupið 2017.jpg

Önnur umgjörð
Merkingar verða á hverjum km. 
Það verður ein drykkjarstöð á snúningspunkti á Ægisíðu í og önnur í markinu að hlaupi loknu. Boðið verður upp á vatn og orkudrykk á snúningi og gos o.fl. til viðbótar á marksvæðinu.

Verðlaun
Keppt er í karla- og kvennaflokkum og verða verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin.

Allir karlar sem ná undir 38 mínútur og allar konur sem ná undir 42 mínútur í hlaupinu fá endurgreitt á marklínu 1.500 kr.
Ekki verða sérstök aldursflokkaverðlaun heldur aðeins útdráttarverðlaun. Listi yfir þá sem fengu útdráttarvinninga verður hengdur upp í anddyri Hlíðarenda áður en hlaupinu líkur og verðlaunin afhent þar.

Annað
Þeir sem verða með hlaupakerrur og þess háttar búnað eru beðnir um að ræsa aftast í hlaupinu.

Nánari upplýsingar?
Gísli Vilberg Hjaltason, gislivh@gmail.com