Ásgeir, Bjarni og Sveinn í æfingahóp U19

Bjarni Fritzson, þjálfari U-19 ára landsliðs karla valdi á dögunum æfingahóp fyrir sumarið 2017.

U-19 ára landslið karla tekur þátt í æfingamóti í Lubeck í Þýskalandi 29.júní - 2. júlí, en í ágúst fer svo fram HM 19 ára landsliða í Georgíu þar sem strákarnir verða meðal þátttakenda.

Liðið mætir í líkamleg próf hjá HR í þessari viku en æfingar liðsins hefjast 19. júní. Í hópnum eru þrír Valsarar, þeir Ásgeir Snær Vignisson, Bjarni Ófeigur Valdimarsson og Sveinn Jose Riviera. Valur.is óskar strákunum góðs gengis og til hamingju með valið.