Lokun Nauthólsvegar-Flugvallarvegar

Þriðjudaginn 6. júní kl. 12:00 er gert ráð fyrir að lokað verði fyrir umferð að Valsheimili, Hlíðarenda frá gatnamótum Nauthólsvegar og Flugvallarvegar.

Aðkoma að Hlíðarenda verður um bráðabirgðaveg frá Flugvallarvegi á meðan lokun stendur. Bráðabirgðavegur afmarkast af bleikum línum á meðfylgjandi teikningu.

Gert er ráð fyrir að lokunin sé í gildi frá   kl: 12:00 fimmtudaginn 1. júní til 31. Desember 2018.

Ástæða fyrir tímalengdinni er breyting á gatnaskipulagi og uppbygging nýrra gatna á Hlíðarenda.