Anton semur við danska úrvalsdeildarliðið SönderjyskE.

Anton Rúnarsson leikmaður Vals hefur samið við danska úrvalsdeildarliðið SönderjyskE til tveggja ára, Anton er uppalinn Valsmaður og hefur verið lykilmaður í meistaraflokk Vals undanfarin ár. Á nýliðnu tímabili skoraði Anton 143 mörk í N1 deildinni og endaði sem þriðji markahæsti leikmaður deildarinnar.
Einnig hefur hann séð um þjálfun yngri flokka félagsins með góðum árangri.
Við óskum Antoni velfarnaðar á nýjum vettvangi og þökkum honum fyrir sitt mikla framlag til félagsins.













