Körfubolti: Dagbjört Dögg framlengir við Val

Dagbjört Dögg Karlsdóttir hefur framlengt samningi sínum við Val og mun leika með félaginu í úrvalsdeildinni á næsta tímabili. Dagbjört hefur leikið með Val sl. tvö tímbabil og þykir ein allra efnilegasta körfuboltakona landsins. Hún er í U18 landsliði Íslands og var auk þess valin í A-landsliðshóp og mun fara með liðinu í keppnisferðalag til Írlands nú í júní. Dagbjört Dögg spilaði að meðaltali 27,8 mínútur í leik á síðasta tímabili og skoraði að meðaltali 9,4 stig, tók 3,3 fráköst og átti 2,4 stoðsendingar.

Dagbjört Dögg: "Það eru spennandi tímar framundan hjá Val. Hópurinn okkar er breiður og lítur út fyrir að það stefni í hörku undirbúningstímabil með Darra sem kemur með flottar áherslur. Ég hlakka til að byrja næsta tímabil með krafti og 100% fókus."

Darri: "Við erum hæstánægð með þá ákvörðun Dagbjartar að framlengja við Val. Dagbjört býr yfir ótrúlegri vinnusemi og metnaði sem einkennir leikmenn sem að ná hvað lengst. Hún bætti sig í öllum tölfræðiþáttum yfir síðasta tímabil og við munum leggja okkur fram við að styðja við frekari framþróun hennar sem leikmanns. Þrátt fyrir ungan aldur er hún tilbúin til þess að fara með leiðtogahlutverk innan Vals og við væntum mikils af henni á komandi tímabili."

Dagbjört og Darri.jpg

Á meðfylgjandi mynd má sjá Dagbjörtu og Darra handsala samninginn á dögunum.