Auður, Hallgerður, Signý og Ísabella til úrtaksæfinga hjá U16

Jörundur Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari U16 kvenna valdi á dögunum leikmenn til úrtaksæfinga fyrir Norðurlandamót U16 kvenna í Finnlandi, 29. júní - 7. júlí 2017.

Æfingarnar fara fram 16. - 17. júní og í hópnum eru fjórar Valsstelpur, þær Auður Sveinbjörnsdóttir, Hallgerður Kristjánsdóttir, Signý Ylfa Sigurðardóttir og Ísabella Húbertsdóttir. 

Valur.is óskar stelpunum til hamingju með valið og velgengni á æfingunum.