Torsótt þrjú stig Valur - ÍBV 2-1
Valur - ÍBV 2- 1 (1 - 1)
Íslandsmótið í knattspyrnu, Pepsi-deild karla, 6. umferð. Valsvöllurinn að Hlíðarenda, 4. júní 2017, kl. 17:00, Hvítasunnudagur
Aðstæður: Góðar, hitastig 14°c, austan gola, 3 m/sek. Áhorfendur: 873
Dómari: Helgi Mikael Jónasson. Aðstoðardómarar: Birkir Sigurðarson og Bjarki Óskarsson
Eftir tvo tapleiki í röð var vart um annað að ræða fyrir Valsliðið en að gyrða sig í brók og reyna að knýja fram sigur í 6. umferð Íslandsmótsins. Mótherjarnir að þessu sinni voru Vestmanneyingar og gerði Ólafur Jóhannesson aðeins eina breytingu á liði Vals frá bikarleiknum gegn Stjörnunni á dögunum. Einar Karl kom inn á miðjuna í stað Nikolajs Køhlerts.
Vestmanneyingar hófu leikinn en Valsmenn unnu boltann af þeim umsvifalaust og stjórnuðu leiknum fyrstu 2-3 mínúturnar. Boltinn gekk hratt á milli manna og það brá fyrir laglegu spili milli manna. Byrjunin lofaði sannarlega góðu og eftir aðeins þriggja mínútna leik skoruðu þeir mark eftir fallega sókn.
Andri Adolphsson stakk sér inn á autt svæði í vítateignum og fékk góða sendingu frá Hauki Páli, gaf boltann yfir á vinstri til Bjarna Ólafs sem var á auðu svæði. Bjarni sendi fallegan bolta fyrir markið og þar kom Sigurður Egill aðvífandi og hamraði knöttinn í netið frá markteigshorninu, 1 - 0!
Þetta vakti Vestmanneyinga til lífsins. Þeir svöruðu með harðri sókn og Pablo Punyed skaut hörkuskoti sem hrökk af slánni og út í teiginn þar sem Valsmenn náðu að koma knettinum af hættusvæðinu. Skömmu seinna eiga Eyjamenn aðra sókn og skalla að marki Vals en fram hjá.
Valsmenn réðu lögum og lofum næstu mínúturnar og á 9. mínútu á Guðjón Pétur háa sendingu inn í teiginn sem Nikolaj Hansen skallar yfir markvörðinn en Eyjamenn ná að bjarga á línu. Á 17. mínútu kom ein besta sókn Valsmanna í hálfleiknum, boltinn gekk laglega manna á milli og barst að frá lokum til Andra sem var í upplögðu færi - en skaut fram hjá markinu.
Á 25. mínútu var Andri aftur á ferðinni fékk sendingu inn í teiginn frá Bjarna Ólafi, náði að renna knettinum fram hjá markverðinum en hann hafnaði í stönginni og Eyjmenn bægðu hættunni frá. Á 35. mínútu fær Sigurður Egill frábæra sendingu á vítateigslínuna. Hann er of seinn að leggja knöttinn fyrir sig og Eyjmenn ná að verjast.
Valsmenn, sem höfðu stjórnað leiknum fram að þessu, gáfu aðeins eftir síðustu tíu mínútur hálfleiksins og Eyjamenn gengu á lagið. Þeir sóttu hart undir lok hálfleiksins og á lokamínútunni náðu þeir að jafna með furðulegu marki. Færeyski framherjinn Kaj Leó i Bartalsstovu fékk sendingu inn í teiginn sneri sér í átt að marki en skrikaði fótur og lá í jörðinni, ekkert dæmt, en sá færeyski var ekki alveg af baki dottinn, þar sem hann lá í grasinu þá spyrnti hann boltanum öllum að óvörum í bláhornið og jafnaði leikinn fyrir Eyjamenn rétt áður en flautað var til hálfleiks.
Arnar Sveinn varð fyrir meiðslum undir lok hálfleiksins og kom Andri Fannar í hægri bakvarðarðarstöðuna í upphafi seinni hálfleiks. Seinni hálfleikur þróaðist með svipuðum hætti og tapleikurinn í Grindavík í 5. umferð að því fráskildu að við vorum ekki undir í stöðunni. Valsmenn stjórnuðu ferðinni. Vörnin og miðjan höfðu í fullu tré við andstæðingana og voru meira og minna með knöttinn. En fram á við vantaði töluvert upp á gæðin og þrátt fyrir mýmörg tækifæri á að skapa eitthvað þá var nýtingin engin.
En Ólafur þjálfari dó ekki ráðalaus. Hann ákvað að gera breytingar í framlínunni. Fyrri breytingin kom þegar rétt um stundarfjórðungur var liðinn af hálfleiknum. Þá fór Nikolaj Hansen af velli og í hans stað kom Kristinn Ingi Halldórsson. Seinni breytingin kom tíu mínútum seinna og var öllu afdrifaríkari. Þá kom Sveinn Aron Guðjohnsen inn á fyrir Andra Adolphsson og var ekki búinn að vera margar sekúndur inni á vellinum áður en hann skoraði sigurmark leiksins.
Aðdragandinn var laglegur. Kristinn Ingi dró sig út til vinstri og fékk laglega sendingu upp kantinn. Stakk af varnarmann, lék upp að endamörkum og gaf góðan bolta fyrir markið. Sveinn Aron kom aðvífandi, eins og þar færi sannur miðherji, og honum urðu ekki á nein mistök heldur afgreiddi knöttinn af öryggi í netið. 2 - 1!
Færðist nú fjör í leikinn og skiptust liðin á að sækja. Sveinn Aron kom sér í skallafæri á 85. mínútu en það var varið í horn. Á lokamínútunum sóttu Eyjamenn hart og freistuðu þess að jafna leikinn en Anton var vel á verði og afstýrði í tvígang tilraunum Eyjamanna. Valsmenn hrósuðu sigri en það verður að segjast sem var - að torsóttur reyndist hann að þessu sinni.
Nú er hlé fram undan en næsti leikur, gegn Breiðablik í Kópavogi, fer fram miðvikudaginn 14. júní. Vonandi verður Dion Acoff orðinn leikfær. Þó að sagt sé að Sveinn Aron sé útherji að upplagi þá væri gaman að sjá hann spreyta sig í miðherjastöðunni, þó ekki væri nema einhverjar mínútur, með Dion Acoff og Sigurð Egil til sitt hvorrar handar. ÁFRAM VALUR!