Auður og Ísabella í æfingahóp U17 kvenna

Haraldur Þorvarðarson og Sigurgeir Jónsson hafa valið 26 stúlkur til æfinga 12. - 30. júní, en æfingarnar eru liður í undirbúningi liðsins fyrir EM sem fer fram í Makedóníu í ágúst.

Æfingarnar hefjast með líkamlegum prófum mánudaginn 12. júní í Laugardalshöll og verður tímasetning á þeim auglýst síðar.

Í hópnum eru tvær Valsstúlkur, þær Auður Ester Gestsdóttir og Ísabella María Eiríksdóttir. Valur.is óskar þeim til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.