Danny Tobar og Kristófer Kjeld á úrtökumót KSÍ

Danny Tobar og Kristófer Kjeld Cardoso munu taka þátt í úrtökumóti KSÍ fyrir drengi fædda 2002 sem fer fram í júní á Akranesi.

Þá eru Sigurður Dagsson og Tóbías Ingvarsson einnig í hópnum en þeir hafa báðir æft með Val yfir sumartímann þar sem þeir eru búsettir í Þýskalandi og leika með Tebe frá Berlín. 

Æfingar (leikir) á úrtökumótinu eru lokaðar utanaðkomandi aðilum utan þess að þjálfurum og aðstandendum viðkomandi leikmanna er heimilt að vera viðstaddir æfingarnar. 

Valur.is óskar strákunum til hamingju með valið og góðs gengis.