Elín Helga, Kristín Arndís og Ragnhildur Edda með U19 á Scandinavian Open

Kári Garðarsson þjálfari U-19 ára landsliðs kvenna valdi á dögunum þær 16 stelpur sem taka þátt í Scandinavian Open Championship í Helsingborg í júlí.

Þar leikur liðið dagana 20. - 22. júlí gegn Noregi, Svíþjóð og Danmörku í þessu sterka móti. Í hópnum eru þrjár Valsstelpur þær Elín Helga Lárusdóttir, Kristín Arndís Ólafsdóttir og Ragnhildur Edda Þórðardóttir. 

Valur.is óskar stelpunum til hamingju með valið og góðs gengis í Svíþjóð.