Fylkir - Valur í Pepsídeild karla

Í kvöld kl 19:15 eigast við í Árbænum Fylkir og Valur. Leikir þessara liða hafa í gegnum tíðina verið miklir baráttuleikir og verður engin undantekning á því í kvöld.
Valsmenn sitja í fimmta sæti Pepsídeildarinnar eftir fjóra leiki en Fylkir er í því níunda með þrjú stig. Valsmenn hafa tapað síðustu tveimur leikjum og ætla sér að sækja þrjú stig í Árbæinn í kvöld. Við hvetjum alla Valsara til að mæta og styðja liðið.













