Frábær vika að baki í sumarstarfi Vals - Skráning á námskeið 3-7 í fullum gangi
Líkt og í síðustu viku hefur verið hamagangur í öskjunni að Hlíðarenda og nóg um að vera. Hátt í 80 þátttakendur voru í sumarstarfinu þessa vikuna og óhætt að segja að krakkarnir hefi skemmt sér vel.
Stjórnendur starfsins höfðu þetta að segja eftir viku tvö.
Anna Þorsteinsdóttir (Umsjónarmaður Sumarbúða):"Frábær vika að baki, erum búin að vera dugleg að nýta okkur öll skemmtilegu útisvæðin í kringum Hlíðarenda þessa vikuna. Fórum á ströndina við Nauhólsvík, í leiki á Klambratúni og á leiksvæðið við Hlíðarskóla. Krakkarnir nutu sundferðarinnar í botn og við enduðum svo vikuna á kósý nótunum með að skella okkur í Valsbíó..."
Rasmus Christiansen (einn umsjónarmanna knattspyrnuskólans):"Krakkarnir eru búnir að vinna mjög vel þessa vikuna. Erum búin að æfa sendingar, halda bolta innan liðs, varnarvinnu, sóknarvinnu ásamt því að fara yfir snúninga og trix. Mexíkanarnir í mfl. kvenna voru spurðir spjörunum úr í heimsókninni og vikan endaði svo eins og vanalega á grillveislunni góðu "
Víkingur Goði (Umsjónarmaður körfuboltaskólans):"Önnur vika að baki og gaf hún viku eitt ekkert eftir. Krakkarnir staðið sig einkar vel og það er hreinlega erfitt að fá þau til að taka nestispásu. Fengum góðar heimsóknir þar sem bæði Pálmar Ragnarsson og landsliðsmennirnir Martin Hermannsson og Hildur Björg Kjartansdóttir kíktu í heimsókn.."
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Sumarbúðir í borg:
- Nánari upplýsingar, dagskrá og fl.(birtist sunnudag)
- Tilkynning frá Önnu Þorsteinsdóttur umsjónarkonu sumarbúða í borg
- Facebook síða sumarbúða
Umsjón:Anna Þorsteinsdóttir - íþróttakennari
Email: annathorsteinsdottir@simnet.is
Sími: 777-3309 (aðeins á vinnutíma)
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Knattspyrnusóli Vals:
Umsjón:Elísa Viðarsdóttir & Rasmus Christiansen
Email: elisavidars@gmail.com
Sími: 856-9691 (aðeins á vinnutíma)
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Körfuboltaskóli Vals:
Umsjón:Víkingur Goði Sigurðsson
Email: vgs1508@gmail.com
Sími: 777-9888 (aðeins á vinnutíma)
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Tekið er við skráningu og greiðslu á staðnum fyrir þá sem það kjósa - Vinsamlegast leitið aðstoðar á skrifstofu ef svo ber undir.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!
Sjá einnig: Bæklingur um sumarstarf Vals
Sjá einnig: Bæklingur um sumarstarf Vals (English summary)
Heimasíða: www.valur.is/born-unglingar/sumarstarf-vals-2017