Stund hefndarinnar! Valur - Grindavík 2-0 (1-0)
Valur - Grindavík 2 - 0 (1 - 0)
Íslandsmótið í knattspyrnu, Pepsi-deild karla, 16. umferð. Valsvöllurinn að Hlíðarenda, mánudaginn 21. ágúst 2017, kl. 19:15
Aðstæður: Góðar, hitastig 13°c, sunnan gola, 3m/sek. Áhorfendur: 850
Dómari: Gunnar Jarl Jósson. Aðstoðardómarar: Gylfi Már Sigurðsson og Gunnar Helgason
Það var stund hefndarinnar á Hlíðarenda í gærkvöldi. Valsmenn náðu að hefna ófaranna frá því fyrr í sumar suður í Grindavík þar sem þeir töpuðu með eins marks mun. Nú sneru þeir taflinu við og bættu um betur með tveggja marka sigri.
Ólafur stillti upp liði sínu með þremur varnarmönnum þar sem Orri Sigurður lék í stöðu hægri bakvarðar í stað Arnars Sveins Geirssonar sem á við meiðsli að stríða. Einar Aron var miðvörður og Bjarni Ólafur vinstri bakvörður. Í fimm manna miðju var Haukur Páll djúpur, Einar Karl miðsvæðis og Guðjón Páll fremstur, úti á köntunum léku Sigurður Egill og Andri Adolphs. Framherjastöðurnar skipuðu Danirnir Patrick Pedersen og Nicolas Bogild. Ari Anton stóð í markinu að venju.
Leikurinn hófst með látum og mátti engu muna að Valur næði forystunni strax á upphafsmínútunum. Strax á annarri mínútu komst Andri inn í sendingu hjá Grindvíkingum, óð upp völlinn, gaf góða sendingu inn í vítateiginn þar sem Sigurður Egill var örlítið of seinn að ná fram úr varnarmanni sem náði að komast fyrir skot hans. Úr horninu barst boltinn fyrir fætur Bjarna Ólafs sem stóð óvaldaður á markteignum í sannkölluðu dauðafæri en brást bogalistin, skot hans lenti í varnarmanni og fór þaðan í horn.
Grindvíkingar áttu einnig sín færi. Á 8. mínútu, eftir skarpa gagnsókn eiga þeir fast skot að marki sem Anton Ari nær að slá út í teiginn þar var markahrókur þeirra, Andri Rúnar fyrstur á vettvang og virtist eiga auðvelt með að senda knöttinn í netið frá hjá liggjandi markverðinum. En á einhvern undraverðan hátt náði Anton Ari samt að kasta sér fyrir skotið og verja, stórbrotin markvarsla!
Valsmenn náðu fljótlega yfirhöndinni á miðjunni þar sem Einar Karl ríkti sem kóngur væri en voru ekki nógu afgerandi á þriðja hluta leikvallarins þar vildu góðar sóknir gjarnan fara út um þúfur. Gagnsóknir Grindvíkinga voru sumar beittar en Valsvörnin og frábær markvarsla Antons Ara sá við öllum tilraunum þeirra.
Um miðjan hálfleikinn uppskáru Valsmenn loksins. Góð sókn Vals skilaði þá glæsilegu marki. Bjarni Ólafur fékk boltann út á vinstri kantinn og gaf fasta sendingu fyrir markið á Nicolas Bogild. Nicolas lét boltann fara á Einar Karl sem var í góðu færi við vítateigslínuna. Einar Karl gerði sér lítið fyrir og þrumaði knettinum af miklu öryggi neðst í hægra markhornið 1 - 0!
Grindvíkingar voru ekki á því að gefast upp og var hart barist sem eftir lifði hálfleiksins. Eftir hálftíma leik varð Haukur Páll fyrirliði fyrir hnjaski og kom Andri Fannar í hans stað. Valsmenn áttu nokkrar góðar sóknir en herslumuninn vantaði til að ná að aka við forystuna í hálfleiknum.
Nokkuð jafnræði var með liðunum í seinni hálfleik og því var eins marks forysta Vals nokkuð tæp. Ólafur skipti Nicolas Bogild út fyrir Kristján Inga þegar um tuttugu mínútur voru liðnar af seinni hálfleik og eftir hálftíma leik gerði hann taktíska breytingu þegar hann skipti út framherjanum Patrick Pedersen og bætti miðverðinum Rasmusi Christiansen við vörnina.
Það var ekki fyrr en tíu mínútum fyrir leikslok að Valsmenn náðu að "drepa" leikinn. Úr hornspyrnu frá hægri barst boltinn út til Einars Karls sem stóð óvaldaður 5-10 metrum utan vítateigs. Hann var ekkert að tvínóna, heldur lagði knöttinn snarlega fyrir sig og hamraði hann síðan með firnaföstu vinstrifótarskoti upp í samskeytin fjær. Tvímælalaust eitt af fallegustu mörkum leiktíðarinnar. 2 - 0!
Valsmenn héldu einbeitingunni það sem eftir lifði leiks og sigldu sigrinum í höfn af öryggi. Þetta var mikilvægur sigur í ljósi úrslita síðustu tveggja leika og vonandi er liðið komið á sigurbraut á nýjan leik. Einar Karl Ingvarsson var maður þessa leiks, mörkin tvö auk skínandi leiks á miðjunni undirstrika það.
Andri Fannar kom inn á fyrir fyrirliðann, Hauk Pál og leysti erfitt hlutverk óaðfinnanlega, átti mjög góðan leik, varðist af krafti og skilaði boltanum vel frá sér til samherjanna. Vörnin var sterk að vanda að ógleymdum markverðinum Antoni Ara sem vex með hverri raun og varði stórkostlega á mikilvægum augnablikum. Sjónir landsliðsþjálfarans hljóta brátt að beinast að Antoni Ara og óumdeildum hæfileikum hans. Hann hefur vaxið verulega í sinni stöðu í sumar.
Það eru sex leikir eftir. Úti gegn Eyjamönnum, KA og Stjörnunni og heima gegn Breiðabliki, Fjölni og Víkingi. En hugsum aðeins um einn leik í einu. Næst er það ÍBV í Vestmannaeyjum, laugardaginn 26. ágúst kl. 16. ÁFRAM VALUR!