Íþróttaskóli Vals hefst 16. september - skráning í fullum gangi

Skráning í íþróttaskóla Vals er hafin en skólinn er hugsaður fyrir leikskólabörn sem fædd eru 2012-2016 (eða frá 18 mánaða - 5 ára), en markmið hans er að kynna fyrir börnunum hinar ýmsu íþróttagreinar og leiki. Í skólanum læra börn að leika sér saman, leika með foreldrum auk þess að fylgja fyrirmælum kennara og vinna í hópum. Skólinn verður starfræktur á laugardagsmorgnum og HEFST NÝTT NÁMSKEIÐ LAUGARDAGINN 16. september 2017.

  •  Börn fædd 2015 - 2016 (f.  1. jan - 1. jún):   Eiga tíma frá kl. 9:10-9:45
  •  Börn fædd 2012-2014:   Eiga tíma frá 9:50-10:30

Stjórnendur

Veturinn 2017-18 munu Kolbrún Franklín og Elfa Björk Hreggviðsdóttir sjá um íþróttaskóla Vals ásamt vöskum aðstoðarmönnum. Kolbrún og Elfa Björk eru grunnskólakennarar og hafa áralanga reynslu í að vinna með börnum og unglingum. Þær eru uppaldir Valsarar og spiluðu handbolta með félaginu í 15 ár. Einnig hefur Kolbrún þjálfað handbolta hjá Val. Framundan má gera ráð fyrir fjörugum og skemmtilegum íþróttaskóla.                   

Skráning (Haust 2017)

Minnum á að mikilvægt er að skrá börnin sem fyrst í skólann til þess að ná örugglega plássi.  Það er gert á heimasíðunni, undir "Skráning iðkenda" https://valur.felog.is/ eða hér í gegnum Íslykil/rafræn skilríki: innskraning.island.is/?id=valur.felog.is 

Vakni upp spurningar varðandi skráningu er hægt að hafa samband við íþróttafulltrúa Vals, Gunnar Örn Arnarson í síma 414-8005 / gunnar@valur.is. Skrifstofa Vals er opin alla virka daga frá kl. 09:00-16:00

Hægt er að hafa samband við stjórnendur íþróttaskólans í gegnum tölvupóstinn itrottaskolivals@gmail.com