Uppskeruhátíð 5. 4. og 3. fl. kk og kv

Uppskeruhátíð verður haldin fyrir iðkendur í 5. 4. og 3. flokk karla og kvenna fyrir tímabilið 2016-2017 mánudaginn 18. september klukkan 17:00 í veislusal félagsins að Hlíðarenda.

5. flokkur - Börn fædd 2005-2006

4. flokkur - Börn fædd 2003-2004

3. flokkur - Börn fædd 2001-2002

Uppskeruhátíðin er haldin fyrir bæði iðkendur og foreldra sem eru sérstaklega hvattir til að mæta.

Dagskrá:

17:00 Uppskeruhátíðin opnuð, iðkendur og foreldrar boðnir velkomnir

17:05 Farið yfir starf flokkanna yfir tímabilið

17:30 Veitingahlaðborð að hætti Valsmanna (umsjón í höndum foreldra - sjá nánar að neðan)

17:50 Allir hvattir til að fara á leik Íslands og Færeyja (Undankeppni kvenna - HM2019) sem hefst 18:15 á Laugardalsvelli

Veitingaskipulag - Upplýsingar

5. flokkur kv koma með niðurskorið grænmeti / ávexti

4. flokkur kk & 3. fl. kk koma með brauðmeti

3. & 4. flokkar kv kemur með kökur/bakkelsi

5. flokkur karla (2005-06) er í veitingastjórn og kemur með drykki (djúsþykkni / mjólk). Veitingastjórnin sér um að taka á móti veitingum og passa að þær séu smekklega framsettar. Veitingastjórnin sér einnig til þess að gengið sé frá eldhúsi og sal að lokinni dagskrá.