Ýmir í 20 manna hóp A landsliðs karla sem mætir Svíum

Geir Sveinsson landsliðsþjálfari Íslands í handknattleik valdi á dögunum 20 manna hóp sem mætir Svíum í tveimur leikjum í lok októbermánaðar. 

Leikirnir fara fram hér heima fimmtudaginn 26. október og laugardaginn 28. október. Í hópnum er Valsarinn Ýmir Örn Gíslason og óskar valur.is honum til hamingju með valið og góðs gengis leikjunum.