Valur - Stjarnan í kvöld

Í dag, þriðjudaginn 29. maí, fer fram stórleikur í Pepsi deild kvenna. Valur tekur á móti Stjörnunni að Hlíðarenda. Við höfum farið rólega af stað í deildinni en stígandi hefur verið í leik liðsins. Tveir erfiðir útivellir að baki en nú er komið að því að sanna hversu sterkt vígi Hlíðarendinn er.
Deildin virðist ætla að verða hrikalega jöfn í ár þar sem hver leikur er hörkubarátta og leikurinn á morgun verður engin undantekning. Bikar - og Íslandsmeistarar munu berjast í 90+ mínútur þar sem ekkert verður gefið eftir. Við stelpurnar hlökkum gríðarlega til að klæða okkur í Valstreyjurnar og mæta á völlinn í kvöld. Við skorum á alla Valsara aðgeraslíkt hið sama og styðja okkur til sigurs. Veðrið lofar góðu og það gerum við líka.
Bongó blíða, fallegur fótbolti, gleði og VALSSIGUR!
Gerum þetta saman - Áfram Valur!
Fyrir hönd meistaraflokks kvenna Val,
Mist Edvardsdóttir og Thelma Björk Einarsdóttir.













