Anton, Magnús Óli og Vignir í afrekshóp HSÍ

Geir Sveinsson landsliðsþjálfari karla í handknattleik valdi á dögunum afrekshóp sem æfir 25. - 28. október næstkomandi.

Hópurinn er fyrst og fremst hugsaður til undirbúnings fyrir þá leikmenn sem hugsanlega gætu komið inn í A landsliðið á næstu árum. Einar Guðmundsson stýrir æfingum hópsins en í honum eru þrír Valsarar, þeir Anton Rúnarsson, Magnús Óli Magnússon og Vignir Stefánsson.

Æfingar hópsins hefjast miðvikudaginn 25. október og leikur liðið m.a. æfingaleik gegn U-20 laugardaginn 28. október. Valur.is óskar strákunum til hamingju með valið.