Öflugt þjálfarateymi hjá 2. og 3. flokki kvenna í knattspyrnu

Á dögunum var gengið frá ráðningu á þriggja manna teymi sem mun þjálfa  2. og 3. flokk kvenna hjá Val. Um er að ræða þau Margréti Magnúsdóttir, Rakel Logadóttur og Þórð Jensson.

Rakel og Þórður eru Hlíðarenda góðu kunnug enda bæði starfað áður sem þjálfarar hjá félaginu en snúa til baka eftir nokkurra ára fjarveru. Margrét hefur undanfarin ár gegn stöðu yfirþjálfara kvennaboltans hjá Val og mun gera áfram.

Valur.is óskar þríeykinu velfarnaðar í starfi og góðs gengis á hliðarlínunni.