Díana Dögg og Hildur í æfingahóp A-landsliðs kvenna

Axel Stefánsson, þjálfari A-landsliðs kvenna valdi á dögunum 20 leikmenn til æfinga í Reykjavik 26. - 29. október nk. Hópinn skipa eingöngu leikmenn sem spila á Íslandi þar sem ekki er um alþjóðlega landsleikjaviku að ræða.

Í hópnum eru tvær Valsstúlkur, þær Díana Dögg Magnúsdóttir og Hildur Björnsdóttir en báðar hafa þær farið vel af stað með toppliði Vals í Olís-deild kvenna.

Valur.is óskar stelpunum til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.