Vignir Stefánsson til Vals

Handknattleiksdeild Vals hefur samið við Vigni Stefánsson 22 ára til þriggja ára. Vignir er efnilegur vinstri hornamaður og hefur spilað sinn feril með ÍBV og hefur verið í yngri landsliðum Íslands. Við bjóðum Vigni velkominn að Hlíðarenda.













