Valur - Keflavík Pepsídeild karla

Í dag fimmtudag eigast við Valur og Keflavík í 6.umferð Pepsídeildar karla. Leikir þessara liða hafa í gegnum tíðina verið hin mesta skemmtun og verður vonandi engin breyting þar á. Leikurinn hefst kl.19:15 og hvetjum við alla Valsara til að mæta og hvetja strákana.

Fálkarnir verða við grillið fyrir leik og í hálfleik svo það er tilvalið að taka fjölskylduna með, sjá skemmtilegan leik og fá sér pylsu eða grillaðan borgara og styrkja um leið barna-og unglingastarf félagsins.

Áfram Valur.