Pétur Pétursson ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna
Pétur Pétursson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Knattspyrnufélaginu Val til næstu þriggja ára.
Á þjálfaraferlinum hefur Pétur meðal annars þjálfað meistaraflokka KR, Fram og Keflavík og var á sínum tíma aðstoðarþjálfari Ólafs Jóhannessonar með íslenska landsliðið.
Pétur var atvinnumaður í mörg ár og spilaði lengst af með Feyenoord í Hollandi og er talin upp sem einn af 10 bestu leikmönnum Íslands í sögunni.
Nýlega var gengið frá ráðningu þriggja manna teymis sem mun þjálfa 2. og 3.flokk kvenna hjá Val. Um er að ræða þau Margréti Magnúsdóttir, Rakel Logadóttur og Þórð Jensson. Rakel og Þórður eru Hlíðarenda góðu kunnug enda bæði starfað áður sem þjálfarar hjá félagin og snúa nú til baka eftir nokkurra ára fjarveru. Margrét hefur undanfarin ár gengt stöðu yfirþjálfara yngri flokka kvenna. Þessi hópur mun verða Pétri innan handar eftir þörfum enda mikill efniviður yngri leikmanna í þessum flokkum.