10 ára afmæli Valur Skokk

Valur Skokk, skokkhópur Vals stendur á sannkölluðum tímamótum í dag því alls eru tíu ár frá því hópurinn kom fyrst saman, þann 1. nóvember 2007. 

Frá því hópurinn hóf göngu sína hefur virkum meðlimum fjölgað úr 4 í 40-50 talsins. Á meðfylgjandi mynd má sjá hluta hópsins að loknu hlaupi í þessari viku. 

Valur.is óskar Vali Skokk hjartanlega til hamingju með afmælið.