|
Áfram,hærra! er mynd af vegferð Knattspyrnufélagsins Vals á fyrstu
100 árum þess. Bókin er ekki sagnfræðibók, heldur er hún brot
minninga og mynda, skrifuð til heiðurs öllum þeim Valsdrengjum og
Valsstúlkum sem gengin eru.
Bókin er til hvatningar æskunni í Val og til fróðleiks og
skemmtunnar öllum sem unna Val. Þá er bókin einnig samtímasaga
Reykjavíkur í máli og myndum enda saga Knattspyrnufélagsins Vals
samofin sögu Reykjavíkur.
Þetta glæsilega afmælisrit er ómissandi fyrir alla Valsara og fæst
á Hlíðarenda fyrir kr. 14.900.-
Þá minnum við einnig á að til sölu er veglegur CD og DVD diskur þar
sem finna má sögu félagsins og síðan 13 Valslög sem eru ómissandi í
bílinn eða bara heima við. Diskurinn inniheldur sem fyrr segir bæði
DVD disk og CD og kostar einungis 2.990.- og fæst hann í verslun-og
veitingasölu að Hlíðarenda.
|