Andri Steinn Birgisson ráðin aðstoðarþjálfari mfl.kvenna í knattspyrnu
Andri Steinn Birgisson, 34 fyrrum knattspyrnumaður, hefur verið
ráðinn aðstoðarþjálfari mfl.kvenna í knattspyrnu. Andri hefur áður
þjálfað lið í neðri deildunum hér á Íslandi en er afar spenntur
fyrir þjálfun sinni hjá Val.
Andri mun vera Pétri Péturssyni til halds og trausts og verður
fróðlegt að fylgjast með þeim og meistaraflokki kvenna á komandi
tímabili.
Í samtali við valur.is sagði Andri Steinn:
"Þetta er mjög gott skref á mínum þjálfaraferli. Valur er
stórt félag á Íslandi og mikil saga í klúbbnum. Það er alltaf
stefnt á titla í Val og á því verður engin
breyting.".