Hallgerður, Ísabella og Signý á úrtaksæfingar hjá U17
Jörundur Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari U17 kvenna í knattspyrnu valdi á dögunum leikmenn til að taka þátt í úrtaksæfingum dagana 16. og 17. desember næstkomandi.
Í hópnum er þrjár stelpur úr Val, þær Hallgerður Kristjánsdóttir, Ísabella Húbertsdóttir og Signý Ylfa Sigurðardóttir.
Valur.is óskar stelpunum til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.