Fimm Valsstelpur í úrtakshóp U16

Jörundur Áki Sveinsson landsliðsþjálari U16 kvenna valdi á dögunum úrtakshóp sem kemur til æfinga 16. og 17. desember næstkomandi. 

Í hópnum eru fimm Valsstelpur, þær Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving, Anna Hedda Björnsdóttir Haaker, Ragna Guðrún Guðmundsdóttir, Ólöf Sigríður Kristinsdóttir og Katrín Rut Kvaran. 

Valur.is óskar stelpunum til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.