Sjö Valsstelpur í úrtakshópum U16 og U17 í fótbolta

Jörundur Áki Sveinsson þjálfari U16 og U17 ára landsliða kvenna í knattspyrnu valdi á dögunum hópa sem koma til úrtaksæfinga 12.-14. janúar n.k. 

Í hópunum eru sjö Valsstelpur, í U16 eru þær Anna Hedda Björnsdóttir Haaker, Karen Guðmundsóttir, Karólína Ósk Erlingsdóttir og Katrín Rut Kvaran. Í U17 hópnum eru svo þær, Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving, Ólöf Sigríður Kristinsdóttir og Signý Ylfa Sigurðardóttir. 

Valur.is óskar stelpunum til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.