Hlín Eiríksdóttir kölluð inn í hóp landsliðsins

Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu hefur kallað Hlín Eiríksdóttur inn í landsliðshópinn sem heldur til La Manga þann 18. janúar og leikur gegn Noregi þann 23. janúar. 

Þetta er í fyrsta skipti sem Hlín er valin í A-landsliðshóp og frábært fyrir þessa gríðarlega efnilegu knattspyrnukonu. 

Valur.is óskar Hlín til hamingju með valið og góðs gengis með liðinu.