Þorragleði Vals - Tryggðu þér miða!

Þorragleði Vals verður haldin 9. febrúar næstkomandi. Miðasala fer fram  í Valsheimilinu að Hlíðarenda þriðjudaginn 23.janúar kl. 18:00-20:00. Mæta þarf tímalega til að tryggja sér borð!

  • Hópar þurfa að panta borð til að sitja saman
  • Miðaverð 8.500 kr. í mat  
  • 2.500 kr. inn á ballið í forsölu en 3.000 kr. á staðnum

Veislustjóri er hinn valinkunni Gísli Einarsson, Kristín Ýr Bjarnadóttir heillar gesti með nokkrum lögum og Ingó Veðurguð hitar upp fyrir dansinn. Daddi diskó sér svo til þess að dansgólfið verðir fullt fram eftir nóttu. 

Húsið opnar kl. 19:00 og borðhald hefst stundvíslega kl. 20:30. Húsið opnar svo fyrir ballgesti kl 23:00.