Eygló, Ásdís og Stefanía í æfingahóp U19

Þórður Þórðarson landsliðsþjálfari U19 ára landsliðsins í knattspyrnu valdi á dögunum æfingahóp sem kemur saman til æfinga dagana 26-28. janúar n.k.

Í hópnum eru þrjár Valsstelpur, þær Eygló Þorsteinsdóttir, Ásdís Halldórsdóttir og Stefanía Ragnarsdóttir. Valur.is óskar stelpunum til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.