Eygló, Ásdís og Stefanía til La Manga með U19
Þórður Þórðarson landsliðsþjálfari U-19 kvenna valdi á dögunum leikmenn til að taka þátt í æfingum dagana 23. og 24. febrúar og æfingaleikjum sem verða á La Manga Spáni 28. febrúar - 7.mars n.k.
Í hópnum eru þrjár Valsstelpur, þær Eygló Þorsteinsdóttir, Ásdís Karen Halldórsdóttir og Stefanía Ragnarsdóttir.
Valur.is óskar stelpunum til hamingju með valið og góðs gengis í komandi verkefnum.