Valur Reykjavíkurmeistari kvenna í knattspyrnu 2018

Valur varð í gær Reykjavíkurmeistari kvenna í knattspyrnu eftir 3-1 sigur gegn KR í Egilshöll. 

Mörk Vals í leiknum gerðu þær Hallbera Guðný Gísladóttir (´36), Hallgerður Kristjánsdóttir (´70) og Ragna Guðrún Guðmundsdóttir (´87). 

Þetta er þriðja árið í röð sem Valur hampar þessu titli og óskar Valur.is stelpunum og aðstandendum liðsins til hamingju.

(Meðfylgjandi myndir: fotbolti.net)