Bjarni og Sveinn Jose í æfingahóp U20

Bjarni Fritzson þjálfari U20 ára landsliðs karla valdi á dögunum 21 leikmann til æfinga og keppni í sumar. 
Liðið mun  leika æfingaleiki við Frakka í Strasbourg í Frakklandi dagana  5.-8. júlí.

Eftir leikina gegn Frökkum verður valinn 16 manna hópur sem tekur þátt í lokakeppni Evrópumeistaramótsins sem haldið verður í í Celje í Slóveníu 18.-30. júlí n.k. Þetta lið varð í 7. sæti á síðasta Evrópumeistaramóti sem haldið var í Króatíu sumarið 2016.

Í hópnum eru tveir Valsarar, þeir Bjarni Ó. Valdimarsson og Seinn Jose Rivera, óskum við þeim til hamingju með valið og góðs gengis með liðinu.