Uppskeruhátíð 8. 7. og 6. fl í knattspyrnu
Uppskeruhátíð 8. 7. og 6. fl í knattspyrnu
Uppskeruhátíð verður haldin fyrir iðkendur í 6. 7. og 8. flokk karla og kvenna fyrir tímabilið 2017-2018 fimmtudaginn 30. ágúst klukkan 17:00.
8. flokkur - Börn fædd 2012-2013
7. flokkur - Börn fædd 2010-2011
6. flokkur - Börn fædd 2008-2009
Uppskeruhátíðin er haldin fyrir bæði iðkendur og foreldra sem eru sérstaklega hvattir til að mæta.
Dagskrá:
17:00 Uppskeruhátíðin opnuð, iðkendur og foreldrar boðnir velkomnir
17:05 Farið yfir starf flokkanna yfir tímabilið og viðurkenningaskjöl veitt.
17:45 Veitingahlaðborð að hætti Valsmanna (umsjón í höndum foreldra - sjá nánar að neðan)
18:15 Stuð og stemming með meistaraflokkum félagsins á Valsvelli
Veitingaskipulag - Upplýsingar
8. flokkur kk & kv koma með niðurskorið grænmeti / ávexti
7. flokkur kk & kv koma með brauðmeti
6. flokkur kv kemur með kökur/bakkelsi
6. flokkur karla er í veitingastjórn og kemur með drykki (djúsþykkni / mjólk). Veitingastjórnin sér um að taka á móti veitingum og passa að þær séu smekklega framsettar. Veitingastjórnin sér einnig til þess að gengið sé frá eldhúsi og sal að lokinni dagskrá.