Íþróttaskóli Vals hefst 22. september

Íþróttaskóli Vals - skráning á haustönn er hafin.

Íþróttaskólinn er hugsaður fyrir leikskólabörn sem fædd eru 2013-2017 (eða frá 18 mánaða - 5 ára), en markmið hans er að kynna fyrir börnunum hinar ýmsu íþróttagreinar og leiki. Í skólanum læra börn að leika sér saman, leika með foreldrum auk þess að fylgja fyrirmælum kennara og vinna í hópum. Skólinn verður starfræktur á laugardagsmorgnum og HEFST NÝTT NÁMSKEIÐ LAUGARDAGINN 22. SEPTEMBER 2018.

  •  Börn fædd 2016 - 2017 (f.  1. jan - 1. jún):  Eiga tíma frá kl. 9:10-9:45
  •  Börn fædd 2013-2015:  Eiga tíma frá 9:50-10:30

Stjórnendur

Haustið 2018 mun Sigríður Ósk Fanndal sjá um íþróttaskóla Vals ásamt vöskum aðstoðarmönnum. Sigga er íþróttakennari í Seljaskóla, þaulreyndur þjálfari sem hefur starfað með öllum aldri og í margs konar íþróttagreinum. Við erum ótrúlega heppin að fá hana í liðið okkar.

Skráning fyrir haustið 2018 er hafin.

Minnum á að mikilvægt er að skrá börnin sem fyrst í skólann til þess að ná örugglega plássi.  Það er gert á heimasíðunni, undir "Skráning iðkenda" https://valur.felog.is/ eða hér í gegnum Íslykil/rafræn skilríki: innskraning.island.is/?id=valur.felog.is 

Vakni upp spurningar varðandi skráningu er hægt að hafa samband við íþróttafulltrúa Vals, Herdís Hallsdóttir í síma 414-8005 / herdis@valur.is. Skrifstofa Vals er opin alla virka daga frá kl. 09:00-16:00

 

Íþróttaskólinn hefst laugardaginn 22. september og síðasti tími skólans er 24. nóvember.