Fimm Valsstúlkur til æfinga með U19 og þrjár hjá U17
Þórður Þórðarson landsliðsþjálfari U19 kvenna í knattspyrnu valdi á dögunum hóp sem kemur til æfinga dagana 18.-20. janúar en þar er að finna fimm Valsstúlkur. Það eru þær Bergdís Fanney Einarsdóttir, Hlín Eiríksdóttir, Stefanía Ragnarsdóttir, Ísabella Anna Húbertsdóttir og Guðný Árnadóttir.
Þá valdi Jörundur Áki Sveinsson þjálfari U17 landsliðs kvenna hóp til úrtaksæfinga sem kemur saman sömu helgi þar sem Valsararnir Anna Hedda Baker, Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving og Ólöf Sigríður Kristinsdóttir voru valdar.